Fjármál
Samtals 342 milljónum króna úthlutað til aðildarfélaga
Rekstrartekjur KSÍ á árinu 2020 voru um 1.688 mkr, eða um 67 milljónum hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Tekjur af landsleikjum svo til hurfu vegna áhorfendabanns, en á móti kom hækkun á styrkjum og framlögum FIFA og viðbótarframlag vegna reksturs Laugardalsvallar. Rekstrarkostnaður var 239 mkr lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir, eða um 1.337 mkr samanborið við 1.576 í áætlun.
Rekstrarniðurstaða samstæðu Knattspyrnusambands Íslands á árinu er því hagnaður, tæpar 38 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir að heildartekjur KSÍ árið 2021 verði um 1.694 mkr samanborið við 1.689 mkr árið 2020. Áætluð heildargjöld ársins 2021 eru 1.520 mkr, samanborið við 1.337 mkr árið 2020. Áætluð rekstrarniðurstaða ársins 2021 eftir greiðslur til aðildarfélaga er 36,6 mkr.
Í fjárhagsáætlun 2021 er gert ráð fyrir að framlög til aðildarfélaga verði tæpar 146 mkr. Framlag KSÍ til barna- og unglingastarfs er áætlað 60 mkr, greiðslur vegna leyfiskerfis hækka í 41 mkr (vegna leyfiskerfis kvenna), verðlaunafé móta rúmar 13 mkr og þá er gert ráð fyrir að hlutur KSÍ vegna ferðaþátttökugjalds verði tæpar 24 mkr árið 2021. Loks má geta framlags upptöku- og tæknibúnaðar til aðildarfélaga að verðmæti 7,5 mkr.
161 milljón til barna- og unglingastarfs
Hluti þeirra tekna sem UEFA hefur af Meistaradeild karla rennur til félaga í aðildarlöndum UEFA til eflingar knattspyrnu barna og unglinga og fengu félög í Pepsi Max deild karla 90,5 milljónir í sinn hlut.
KSÍ greiddi 70,5 mkr til aðildarfélaga (annarra en þeirra sem léku í Pepsi Max deild karla) vegna barna- og unglingastarfs (þar af 10 mkr aukaúthlutun vegna Covid-19).
Skipting á framlagi var þá með þeim hætti að félög úr Pepsi Max deild karla fengu rúmar 7,5 milljónir kr, félög úr Pepsi Max deild kvenna og Lengjudeildum karla og kvenna fengu 2.400.000 kr., félög úr 2. deild karla fengu 1.500.000 kr., en önnur félög í deildarkeppni og sameiginleg lið í efri deildum fengu 1.000.000 kr. Úthlutun var háð því að félög hefðu haldið úti starfsemi í yngri flokkum og urðu félög utan deildarkeppni og félög sem ekki héldu úti starfsemi hjá báðum kynjum að sækja sérstaklega um framlag. Samtals var því framlag til barna- og unglingastarfs fyrir árið 2020 um 160 milljónir króna.
Um 274 milljónir vegna þátttöku í UEFA keppnum
KR fékk um 143 milljónir kr. (880 þúsund evrur) fyrir Íslandsmeistaratitil karla 2019, þátttöku í forkeppni Meistaradeildar karla (UEFA Champions League) og forkeppni Evrópudeildar UEFA (UEFA Europa League). Breiðablik, FH og Víkingur R. léku í forkeppni Evrópudeildarinnar. Breiðablik og Víkingur R. fengu í sinn hlut um 46 milljónir kr. (280 þúsund evrur) og FH um 39,5 milljónir króna (240 þúsund evrur).
Valur fékk rúmlega 6 milljónir kr. (40 þúsund evrur) vegna þátttöku í Meistaradeild kvenna (UEFA Women´s Champions League).
Greiðslur vegna þátttöku leikmanna í Þjóðadeild UEFA og undankeppni EM 2020
FH, Grindavík, ÍBV, Valur og Víkingur R. fengu greiðslur frá UEFA vegna þátttöku leikmanna sinna í Þjóðadeild UEFA (karlalandslið) (UEFA Nations League) og undankeppni EM karla. Alls voru greiðslurnar um 48 milljónir kr. (rúmlega 302 þúsund evrur).
178,5 milljónir króna fyrir sjónvarps- og markaðsréttindi
Félög í Pepsi Max deildum, Lengjudeildum og Mjólkurbikar fengu sérstakar greiðslur fyrir sjónvarps- og markaðsréttindi, að upphæð samtals 178,5 milljónir króna. Innifalið í þessari tölu er verðlaunafé samkvæmt töflunum hér að neðan.
Pepsi Max deild karlaSæti | Félag | Upphæð |
---|
1 | Valur | 1.000.000 |
2 | FH | 700.000 |
3 | Stjarnan | 500.000 |
4 | Breiðablik | 300.000 |
5 | KR | 300.000 |
6 | Fylkir | 300.000 |
7 | KA | 300.000 |
8 | ÍA | 300.000 |
9 | HK | 200.000 |
10 | Víkingur R | 200.000 |
11 | Grótta | 200.000 |
12 | Fjölnir | 200.000 |
Mjólkurbikar karlaSæti | Félag | Upphæð |
---|
1-4 | Valur | 300.000 |
1-4 | KR | 300.000 |
1-4 | FH | 300.000 |
1-4 | ÍBV | 300.000 |
5-8 | Fram | 200.000 |
5-8 | Breiðablik | 200.000 |
5-8 | Stjarnan | 200.000 |
5-8 | HK | 200.000 |
9-16 | Þór A. | 137.500 |
9-16 | Afturelding | 137.500 |
9-16 | Fylkir | 137.500 |
9-16 | KA | 137.500 |
9-16 | Víkingur R. | 137.500 |
9-16 | Grótta | 137.500 |
9-16 | Fjölnir | 137.500 |
Mjólkurbikar kvennaSæti | Félag | Upphæð |
---|
1-4 | KR | 300.000 |
1-4 | Þór/KA | 300.000 |
1-4 | Selfoss | 300.000 |
1-4 | Breiðablik | 300.000 |
Pepsi Max deild kvennaSæti | Félag | Upphæð |
---|
1 | Breiðablik | 1.000.000 |
2 | Valur | 700.000 |
3 | Fylkir | 500.000 |
4 | Selfoss | 300.000 |
5 | Þróttur R | 300.000 |
6 | Stjarnan | 300.000 |
7 | Þór/KA | 300.000 |
8 | ÍBV | 300.000 |
9 | FH | 200.000 |
10 | KR | 200.000 |
Lengjudeild kvennaSæti | Félag | Upphæð |
---|
1 | Tindastóll | 476.744 |
2 | Keflavík | 333.721 |
3 | Haukar | 238.372 |
4 | Afturelding | 143.023 |
5 | Augnablik | 143.023 |
6 | Grótta | 143.023 |
7 | Víkingur R. | 143.023 |
8 | ÍA | 143.023 |
9 | Fjölnir | 95.349 |
10 | Völsungur | 95.349 |
Lengjudeild karlaSæti | Félag | Upphæð |
---|
1 | Keflavík | 476.744 |
2 | Leiknir R. | 333.721 |
3 | Fram | 238.372 |
4 | Grindavík | 143.023 |
5 | Þór | 143.023 |
6 | ÍBV | 143.023 |
7 | Vestri | 143.023 |
8 | Afturelding | 143.023 |
9 | Víkingur Ó. | 95.349 |
10 | Þróttur R. | 95.349 |
11 | Magni | 95.349 |
12 | Leiknir F. | 95.349 |
Ferðaþátttökugjald - Jöfnun ferðakostnaðar
Félög sem taka þátt í Íslandsmóti meistaraflokks skulu greiða ferðaþátttökugjald samkvæmt reglugerð KSÍ. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að auknum jöfnuði félaga gagnvart ferðakostnaði.
Hér má sjá lista yfir þau félög sem fengu greitt vegna ferðakostnaðar árið 2020.
Pepsi Max deild karlaFélag | Upphæð |
---|
KA | 849.048 |
2. deild karlaFélag | Upphæð |
---|
Fjarðabyggð | 1.777.316 |
Völsungur | 847.518 |
Dalvík/Reynir | 709.818 |
KF | 667.896 |
4. deild karlaFélag | Upphæð |
---|
Samherjar | 394.944 |
Hörður Í. | 191.556 |
Pepsi Max deild kvennaFélag | Upphæð |
---|
Þór/KA | 682.890 |
2. deild kvennaFélag | Upphæð |
---|
Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F. | 809.676 |
Sindri | 568.956 |
Hamrarnir | 372.300 |
Lengjudeild karlaFélag | Upphæð |
---|
Leiknir F. | 1.864.696 |
Vestri | 1.569.236 |
Magni | 958.596 |
Þór | 871.998 |
ÍBV | 522.291 |
Víkingur Ó. | 477.666 |
Grindavík | 81.192 |
Keflavík | 75.276 |
3. deild karlaFélag | Upphæð |
---|
Höttur/Huginn | 1.506.336 |
Einherji | 1.490.356 |
Sindri | 1.190.476 |
Tindastóll | 699.108 |
Reynir S. | 8.568 |
Lengjudeild kvennaFélag | Upphæð |
---|
Völsungur | 787.542 |
Tindastóll | 327.318 |
Lykiltölur úr ársreikningi KSÍ
Tekjur | Raun 2020 | Áætlun 2020 | Raun 2019 |
---|
Styrkir og framlög | 1.214.989.818 | 1.048.425.859 | 904.370.979 |
Tekjur af landsleikjum | 25.909.950 | 199.515.000 | 189.640.527 |
Sjónvarpsréttur | 295.174.263 | 276.000.000 | 258.240.000 |
Aðrar rekstrartekjur | 48.015.386 | 55.214.000 | 103.793.796 |
Rekstrartekjur Laugardalsvallar | 104.521.234 | 42.489.816 | 44.387.038 |
Rekstrartekjur alls | 1.688.610.651 | 1.621.644.675 | 1.500.432.340 |
Gjöld | Raun 2020 | Áætlun 2020 | Raun 2019 |
---|
Kostnaður við landslið | 626.833.182 | 785.355.416 | 731.650.042 |
Mótakostnaður | 177.965.989 | 214.734.505 | 218.018.160 |
Fræðslukostnaður | 40.268.451 | 59.902.040 | 52.154.020 |
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður | 311.859.256 | 289.681.754 | 288.315.679 |
Húsnæðiskostnaður | 23.696.583 | 25.000.000 | 23.552.661 |
Annar rekstrarkostnaður | 4.532.733 | 10.000.000 | 11.233.497 |
Rekstrargjöld Laugardalsvallar | 67.221.718 | 95.324.000 | 101.328.117 |
Laugardalsvöllur - umspilsaðgerð | 42.102.431 | 64.000.000 | 0 |
Afskriftir | 43.012.829 | 32.425.399 | 32.425.399 |
Rekstrargjöld alls | 1.337.493.172 | 1.576.423.114 | 1.458.677.575 |
Rekstrarhagnaður | Raun 2020 | Áætlun 2020 | Raun 2019 |
---|
Rekstrarhagnaður | 351.117.479 | 45.221.561 | 41.754.765 |
Mannvirkjasjóður | Raun 2020 | Áætlun 2020 | Raun 2019 |
---|
Styrkir vegna mannvirkjasjóðs | 32.150.000 | 30.000.000 | 41.450.000 |
Kostnaður vegna mannvirkjasjóðs | -32.150.000 | -30.000.000 | -41.500.000 |
Fjármagnsliðir | Raun 2020 | Áætlun 2020 | Raun 2019 |
---|
Fjármunatekjur | 10.836.235 | 25.000.000 | 26.810.386 |
Fjármagnsgjöld | -3.437.620) | -7.200.000 | -6.760.485 |
Gengismunur | 21.056.983 | 0 | 7.750.182 |
(Tap)/Hagnaður ársins | Raun 2020 | Áætlun 2020 | Raun 2019 |
---|
Hagnaður fyrir ráðstöfun til aðildarfélaga | 379.573.077 | 63.021.561 | 69.554.848 |
Ráðstöfun til aðildarfélaga | -341.838.639 | -128.500.000 | -120.024.501 |
(Tap)/Hagnaður ársins | 37.734.438 | -65.478.439 | -50.469.653 |
Til baka á forsíðu